Skip to content

Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Bíó Paradís, í samvinnu við Nordisk Film og TV Fond, sýnir allar myndirnar sem tilnefndar eru til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs dagana 18. – 21. október 2018. Myndirnar verða allar sýndar með enskum texta, og miðaverði verður stillt í hóf og kostar aðeins 800 kr inn á hverja mynd.

Það verður sérviðburður í kringum sýninguna á kvikmyndinni Kona fer í stríð, sem er tilnefnd fyrir hönd Íslands til verðlaunanna. Brugðið verður upp veislu með gleði og söng eftir sýninguna sunnudaginn 21. október kl 20:00, en þar með lýkur sýningum Bíó Paradísar á tilnefndu myndunum til Kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs 2018.

Halla er fimmtug og sjálfstæð kona. Fljótt á litið virðist líf hennar rólyndislegt, en í raun er hún virkur aðgerðasinni sem brennur fyrir umhverfismálum og hefur upp á sitt einsdæmi sagt áliðnaði á Íslandi leynilegt stríð á hendur. Halla er að undirbúa stærstu og djörfustu aðgerð ferils síns þegar henni berst óvænt bréf sem breytir öllu. Umsókn hennar um að ættleiða barn hefur verið samþykkt og hennar bíður nú lítil stúlka í Úkraínu. Fréttirnar verða til þess að Halla ákveður að binda enda á feril sinn sem skemmdarverkamaður og bjargvættur hálendisins og láta draum sinn um móðurhlutverkið rætast. Áður en að því kemur skipuleggur hún þó eina lokaárás á áliðnaðinn.

„Ofboðslega falleg kvikmynd þar sem heillandi myndmál, frábær leikur, falleg saga, meitlað handrit og mergjuð notkun tónlistar renna saman í náttúruafl sem Benedikt Erlingsson virkjar með einhverjum óræðum galdri.“ -  - Fréttablaðið

Kona fer í Stríð, sem frumsýnd var á Cannes, sló gjörsamlega í gegn og hefur hlotið einróma lof gagnrýnenda. Benedikt Erlingsson og Ólafur Egill Egilsson, handritshöfundar Kona fer í stríð, hlutu SACD verðlaunin sem veitt eru í flokknum Critic’s Week á Cannes hátíðinni.

BARA EIN SÝNING - sunnudaginn 21. október kl.20:00 með enskum texta!