Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Romy og Michele eru fyrrum skólasystur sem hafa einnig verið herbergisfélagar í tíu ár eftir að þær útskrifuðust úr menntaskóla, og þær hafa síður en svo notið velgengni í lífinu - þær ná sér ekki einu sinni í strák. Þegar 10 ára útskriftarafmælið nálgast þá vilja þær reyna að heilla gömlu skólafélagana og ákveða að þykjast vera ríkar athafnakonur sem fundu upp Post-it minnisblokkirnar.

Það verður sannkallaður stemmari þegar við skellum upp Föstudagspartísýningu með stöllunum tveim 16. nóvember kl.20:00!