Prump í Paradís snýr aftur! Hér er um að ræða mánaðalegar kvikmyndasýningar í umsjá Hugleiks Dagssonar. Hugleikur mun sýna best/verstu kvikmyndir sögunnar. Myndir sem eru svo slæmar að þær eru eiginlega frábærar.
Við ætlum að horfa saman á John Travolta í Battlefield Earth fimmtudaginn 13. desember kl 20:00. Gestur verður nánar tilkynntur síðar.