Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Top Gun var ein vinsælasta mynd ársins 1986 í kvikmyndahúsum um heim allan, gjörsigraði mynbandamarkaðinn og gerði Tom Cruise að stórstjörnu. Þá er Top Gun er sennilega jafn fræg fyrir tónlistina sem fylgdi henni eins og söguna. Hljómplatan með lögum úr myndinni sat í fimm vikur í efsta sæti Billboards metsölulistans og þá hlaut lagið „Take my breath away“ með hljómsveitinni Berlin Óskarsverðlaun sem besta lag í kvikmynd árið 1987.

Ekki missa af geggjaðri partí föstudagssýningu – leyfilegt er að taka allar veigar, sem og áfengar veigar af barnum inn í salinn, 29. júní kl 20:00.