Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Myndin sem margir hafa beðið eftir á föstudagspartísýningu! Hin eina sanna Fight Club í leikstjórn David Fincher, með Brad Pitt, Edward Norton og Helenu Bonham Carter í aðalhlutverkum.

Myndin fjallar um skrifstofumann sem þjáist af svefnleysi sem leitar allra leiða til þess að breyta lífi sínu.  Þegar hann kemst í kynni við sápugerðarmann sem undirbýr slagsmálaklúbb tekur hversdagurinn á sig aðra mynd og hlutirnir eru alls ekki eins og þeir virðast í fyrstu …

Klikkuð föstudagspartísýning þann 11. maí kl 20:00, í Bíó Paradís!