Alþjóðleg Barnakvikmyndahátíð kynnir: hina ástælu sjónvarpsþáttaröð um Nonna og Manna. Árið er 1869 og Nonni og Manni búa heima hjá ömmu sinni á Möðruvöllum í Hörgárdal. Aðkomumaður í dalnum er grunaður um morð en bræðurnir hjálpa honum að flýja til fjalla. Nonni og Manni reyna að sanna sakleysi vinar síns en komast oft í háska einkum þegar hinn raunverulegi morðingi kemur í ljós.
Þættirnir eru talsettir á íslensku.
Sýningartímar:
Föstudaginn 6. apríl kl 18:00 – Fyrstu tveir þættirnir (samtals 100 mín)
Garðar Þór Cortes, Einar Örn Einarsson og Ágúst Guðmundsson svara spurningum úr sal að sýningu lokinni.
Föstudaginn 13. apríl kl 18:00 – Þættir 3 og 4 (samtals 100 mín)
Sunnudaginn 15. apríl kl 18:00 – Þættir 5 og 6 (Samtals 100 mín)
Mán | Þrið | Mið | Fim | Fös | Lau | Sun |
---|---|---|---|---|---|---|
30 | 1 | 2 | 3 | 4 | 5 | 6 |
7 | 8 | 9 | 10 | 11 | 12 | 13 |
14 | 15 | 16 | 17 | 18 | 19 | 20 |
21 | 22 | 23 | 24 | 25 | 26 | 27 |
28 | 29 | 30 | 31 | 1 | 2 | 3 |