Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Hin sex ára gamla Moonee elst upp í skugga Disney World ásamt uppreisnargjarnri og ástríkri móður sinni. Uppvaxtarsaga sem fær hjartað til að slá í leikstjórn Sean Baker sem hefur slegið í gegn með einstakri kvikmyndagerð á síðustu misserum með þeim Brooklynn Prince, Bria Vinaite, Willem Dafoe í aðalhlutverkum.

Myndin hefur hlotið fjölda Alþjóðlegra kvikmyndaverðlauna en var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Cannes 2017. 
Willem Dafoe hlaut tilnefningar til þrennra verðlauna sem besti leikari í aukahlutverki fyrir frammistöðu sína, á Golden Globe, BAFTA og á Óskarsverðlaunahátíðinni 2018.

Sýnd í júlí 2018 sem hluti af sumardagskrá Bíó Paradís með íslenskum texta.