Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Í tilefni af komu heimsþekkta bandaríska kvikmyndaleikarans Bill Murray á Listahátíð í Reykjavík í júní 2018 efna Bíó Paradís, Listahátíð í Reykjavík í samstarfi við Hugleik Dagsson til Groundhog Day í Bíó Paradís! Myndin verður sýnd frá morgni til kvölds, á sjálfan Groundhog Day föstudaginn 2. febrúar 2018. Endalaust kaffi, Hugleikur Dagsson mun bjóða upp á atriði aftur og aftur og hver veit nema að það sé von á leynilegu dagskráratriði. Og þó. ________________________________________________________________________ Listahátíð í Reykjavík leitast við að koma stöðugt á óvart og endurspegla fjölbreytileika mannlífsins. Við getum ekki beðið eftir að taka á móti þér á Groundhog Day og hita upp fyrir komu Bill Murray sem mun bjóða upp á kvöldstund 14. og 15. júní 2018 næstkomandi í Hörpu.