Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Vinsælasta lélegasta kvikmynd fyrr og síðar er af mörgum talin vera The Room – með Tommy Wiseau í aðalhlutverki. The Disaster Artist fjallar um Tommy en James Franco leikur sjálfan Wiseau og bróðir hans, Dave, fer með hlutverk Greg Sestero.

The Disaster Artist segir frá vinasambandi þessara manna og tilurð bíómyndarinnar sem enginn bjóst við því að yrði seinna meir ein sú skemmtilegasta cult mynd allra tíma.

Með önnur hlutverk fara Seth Rogen, Zack Efron, Alison Brie, Sharon Stone, Josh Hutcherson, Zoey Deutch og Bryan Cranston.

Forsýningar í Bíó Paradís verða eftirfarandi:

26. desember (annar í jólum) kl 20:00

27. desember kl 20:00

28. desember kl 20:00

Myndin fer svo í almennar sýningar þann 29. desember.