Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Bruno Volta sérhæfir sig í að greiða úr flóknum flækjum og lesa í fólk og nú reynir heldur betur á þessa sérstöku hæfileika hans.

Þegar kærastan hans, hin kornunga Agnieszka, hittir aðra unga konu sem heitir Vicky í sérkennilegum aðstæðum sér Volta ómótstæðilegt tækifæri til þess að græða stóra fjármuni. Vicky hefur nefnilega fundið mjög sérstakan hlut sem falinn var inni í gömlum vegg.

Volta tekur þá afdrifaríku ákvörðun, ásamt lífverði sínum Dycha, að gera allt sem í valdi hans stendur til þess að komast yfir dýrgripinn. Það er þó allt annað en auðvelt þar sem hin sakleysislega Vicky reynist vera verðugur andstæðingur.