Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Yfirnáttúrulegir hæfileikar menntaskólastúlkunnar Carrie (Sissy Spacek) hjálpa henni að klekkja á skólasystrum sínum er þær niðurlægja hana á skólaballi. Ein af bestu myndunum sem byggðar eru á sögum Stephen Kings.

Hrollvekjandi (maður minnist enn tryllingslegra öskranna í Tónabíói sáluga), blóðug, svört og sykurlaus. Spacek og Piper Laurie, í hlutverki móður hennar, eru báðar framúrskarandi og voru tilnefndar til Óskarsverðlaunanna.

Sýnd á HRYLLINGSKVÖLDI í Bíó Paradís laugardagskvöldið 10. júní kl 20:00!