Á árinu 2016 fögnuðu Klaufabárðarnir fertugsafmæli sínu. Þeir hafa þó aldrei birst í kvikmynd á hvíta tjaldinu áður. Félagarnir finna fullan kassa af bíómyndum á háaloftinu sínu og gamla sýningarvél sem þeir vilja endilega deila með aðdáendum sínum …
En þetta væri þó ekki bíómynd með Klaufabárðunum ef þeir myndu ekki lenda í einhverskonar klandri – og í þetta sinn er það illgjarn kaktus sem ræðst á vistarverur þeirra með mögnuðum hætti. Og fyrst við lifum á 21 öldinni þar sem heilbrigður lífstíll ræður ríkjum, reyna þeir einnig að koma sér í gott form á þrekhjóli. Hvernig ætli sagan endi?
Ekki missa af klassískum Klaufabárðum í kvikmynd sem mun seint gleymast! Án tals og hentar öllum aldurshópum á Alþjóðlegri Barnakvikmyndahátíð í Reykjavík sem haldin er 30. mars – 9. apríl 2017.