Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Sagan um hina vægast sagt sérstöku Tenenbaum-fjölskyldu. Royal ( Gene Hackman), fjölskyldufaðirinn, er geðvondur maður og hefur hann hvorki reynst góður faðir né góður eiginmaður. Til að fá loks að hitta fjölskyldu sína aftur eftir mörg ár gerir hann sér upp banvænann sjúkdóm, ómeðvitaður um hvaða afleiðingar það mun hafa í för með sér …

The Royal Tenenbaums er leikstýrt af Wes Anderson með þeim Danny Glover, Gene Hackman, Anjelica Huston, Bill Murray, Gwyneth Paltrow, Ben Stiller, Luke Wilson og Owen Wilson í aðalhlutverkum. Gene Hackman hlaut Golden Globe verðlaunin fyrir frammistöðu sína í myndinni, og voru handritshöfundarnir Wes Anderson og Owen Wilson tilnefndir til Óskarsverðlaunanna fyrir handritið að myndinni. Myndin var valin á topp 100 bestu myndir af gagnrýnendum frá árinu 2000, í könnum sem gerð var af BBC.

Ekki missa af FÖSTUDAGSPARTÍSÝNINGU á THE ROYAL TENENBAUMS þar sem barinn verður galpinn, föstudaginn 17. mars kl 20:00!