Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Myndin fjallar um fimm unglinga sem þurfa að koma í skólann á laugardegi í eftirsetu. Þau eru hvert úr sínum hópnum innan skólans. Eftir heilan dag saman í eftirsetunni komast þau að því að þau hafa öll mun meira upp á að bjóða heldur en steríótýpurnar sem þau hafa álitið sjálf sig vera.

Myndin kom út árið 1985 og var leikstýrt af John Hughes sem leikstýrði meðal annars Pretty in Pink og Home Alone. Gagnrýnendur telja myndina vera eina af bestu menntaskólamyndum sem hafa verið gerðar.

Myndin er sýnd á föstudagspartísýningu 20. janúar kl 20:00! Foreldrar eru hvattir til að mæta unglinga sína á sýninguna, þetta er geggjuð nostalgíumynd og frábært tækifæri fyrir kynslóðir til að horfa saman!