Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Tónlist. Völd. Öfund.

Sýningin fjallar um samband Wolfgang Amadeus Mozart og Antonio Salieri, hirðtónskálds austuríska keisarans á síðari hluta átjándu aldar. Verkið byggist á sögusögnum um dularfullan dauða Mozarts og þátt Salieri í honum. Salieri kvelst af afbrýði út í hinn unga snilling. Afbrýðin dregur hann til andstyggilegra aðgerða til að koma Amadeusi á kné og loks til dauða. En hvor þeirra sigrar að lokum?

Með Lucian Msamati (LutherGame of ThronesNT Live: The Comedy of Errors) í aðalhlutverki, býður Breska Þjóðleikhúsið upp á ógleymanlega kvöldstund í leikhúsinu.

Sýningar

11. mars kl 20:00

12. mars kl 20:00