Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Árið 2015 voru liðin 400 ár frá Baskavígunum, einu fjöldamorðunum sem Íslendingar hafa framið.

Í júní 1615, beið íslenski fræðimaðurinn Jón Lærði Guðmundsson, enn eitt árið eftir komu basneskra vina sinna að ströndum Íslands. Vinir Jóns, 86 baskneskir hvalveiðimenn, urðu fórnarlömb í einu stærsta fjöldamorði Íslandsögunnar. Fjögur hunduð árum eftir þennan atburð er tímabært að draga þessa sögu fram í dagsljósið. Og sögumaðurinn er Jón Lærði, maðurinn sem fordæmdi grimmdarverkin. Það varð Jóni dýrt, hann og var ákærður og útlægur til dauðadags.

  • Handrit: Aner Etxebarria Moral
  • Stjórn kvikmyndatöku: Jorge Roig
  • Tónlist: Hilmar Örn Hilmarsson
  • Aðalframleiðandi: Katixa De Silva Ruiz De Austri
  • Meðframleiðandi: Hjálmtýr Heiðdal
Panelumræðan verður eftir sýningu þriðjudaginn 22. nóvember. Umræða um myndina og atburðina sem hún greinir frá. Ennfremur verður rætt umþá einstaklinga sem við sögu koma, Jón lærða Guðmundsson, Ara sýslumann í Ögri ofl.

Í paneli verða:

Már Jónsson prófessor í sagnfræði við HÍ. Viðar Hreinsson bókmenntafræðingur og höfundur bókarinnar Jón lærði og náttúrur náttúrunnar sem kemur út innan skamms hjá bókaforlaginu Lesstofan. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir höfundur bókarinnar Brennuöldin. Sigurður Sigursveinsson sagnfræðingur og landafræðingur.

Umræðu stjórnar Kristinn Hrafnsson blaðamaður