Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Myndin segir frá glæpakvendinu Divine sem orðin fræg í fjölmiðlum sem “Ógeðslegasta manneskja í heiminum”. Þennan titil hefur henni tekist að tryggja sér með ýmsum leiðum, meðal annars því að borða hundaskít. Friðurinn er þó úti þegar hin alræmdu hjón, Connie og Raymond gera tilraun til að hrifsa af henni titilinn. Þetta þýðir stríð.

Pink Flamingos olli mikilli hneykslan þegar hún varð frumsýnd en öðlaðist fljótlega költ status og hefur verið sýnd reglulega í bíóhúsum heimsins í rúm fjörtíu ár.

Sjötta myndin í Svörtum September þar sem ein mynd á vegum költmyndahópsins Svartir Sunnudagar (Sigurjón Kjartansson, Sjón og Hugleikur Dagsson) er sýnd á kvöldi, 11. – 18. september.

Sýnd 16. september kl 20.00.