Skip to content

Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Þúsund og ein nótt 2: Hinn vansæli // As Mil e Uma Noites: Volume 2: O Desolado // Arabian Nights: Volume 2: The Desolate One

Miguel Gomes

Portúgal 2015

131 mín

Samtímaatburðir í Portúgal efnahagshrunsins eru fléttaðir inní formið sem sagnaþulurinn Scheherazade notaði á gullöld arabísks kveðskapar. Úr verður epískur sagnabálkur í þremur hlutum, meira en sex tíma langur, uppgjör leikstjóra við þjóðina sem fóstraði hann.

Miguel Gomes hafði gert þrjár myndir í fullri lengd áður en hann réðst í gerð þríleiksins. Frumraun hans var Andlitið sem þú átt skilið (A Cara que Mereces) og hann fylgdi henni eftir með Elsku ágústmánuður (Aquele Querido Mês de Agosto). Það var svo með Tabu sem hann sló í gegn á alþjóðavísu, ljóðrænni svart-hvítri mynd um lífið við fjallsrætur fjallsins Tabú í Afríku. Tabu hlaut tvö verðlaun á kvikmyndahátíðinni í Berlín og fjölda verðlauna á heimsvísu og heima fyrir í kjölfarið.