Skip to content

Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Leikskólakennarinn // Haganenet // The Kindergarten Teacher

Nadav Lapid

Ísrael 2014

119 mín

Nira er leikskólakennari sem uppgötvar ljóðskáldið Yoav. Hann er þó bara fimm ára og pabbi hans er lítið hrifinn af því að leikskólakennarinn sé að hvetja hann til að yrkja. Nira þarf að berjast fyrir því að hæfileikar Yoav séu ekki barðir niður – og á meðan upplifir hún efasemdir um sína eigin ljóðlist.

Nadav Lapid vann verðlaun á Locarno fyrir frumraun sína, Lögreglumaður (Ha-shoter). Þetta er önnur mynd hans í fullri lengd, en hann hefur einnig gert nokkrar stuttmyndir. Ljóðin sem Yaov semur eru byggð á ljóðum sem leikstjórinn Lapid samdi á sama aldri.