Skip to content

Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

ísa refamær // Liza, a rókatündér // Liza, the Fox-Fairy

Károly Ujj Mészáros

Ungverjaland 2015

98 mín

Lísa er hjúkrunarkona í leit að ástinni. Hún býr í Csudapest, skáldaðri höfuðborg Ungverjalands áttunda áratugarins sem varð kapítalisma en ekki kommúnisma að bráð. Hún vinnur við að hjúkra ekkju japanska sendiherrans og á bara einn vin, sem vill svo til að er löngu látin japönsk poppstjarna. Sem þyrfti ekki að vera svo slæmt, ef hann yrði ekki afbrýðisamur og breytti Lísu í refamær. Refamærum fylgir sú bölvun að allir karlmenn sem girnast þær munu deyja skelfilegum dauðdaga. En er einhver leið til að aflétta bölvuninni?

Károly Ujj Mészáros hefur leikstýrt fjölda stuttmynda og auglýsinga sem einkennast af ansi óvenjulegum húmor leikstjórans. Þetta er fyrsta mynd hans í fullri lengd.