Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

The Room er þekkt fyrir að vera ein versta mynd sem gerð hefur verið. Hún kom út árið 2003 og var sýnd við einstaklega dræmar viðtökur í Los Angeles (flestir gestir vildu fá endurgreitt áður en hálftími var liðinn) þar sem ungir kvikmyndaáhugamenn rákust á hana og sáu húmorinn í hörmungunum. Þar draga áhorfendur hana sundur og saman í háði á sama tíma og þeir undra sig á því hvernig hægt er að gera svona góða vonda mynd.

Við bjóðum upp á sannkallaða föstudagspartísýningu, 6. júlí kl 20:00 í Bíó Paradís! Við lofum truflaðri skemmtun, það verða fullt af plastskeiðum á staðnum – og truflað andrúmsloft!