Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Veiga er fyrsta manneskjan til að róa 2.100 kílómetra í kringum Ísland á móti straumnum. Þetta afrek er talið sambærilegt við að klífa fjallið K2.

En hennar persónulega ferð er ekki síður merkileg. Hún fæddist fyrir 44 árum síðan sem strákur í sjávarplássi á Vestfjörðum. Veigar giftist og eignast börn en ákveður svo 38 ára að hann geti ekki lengur lifað sem karlmaður og ákveður að fara í kynleiðréttingu. Innri baráttan þangað til var helvíti líkust og Veigar reyndi tvisvar að taka eigið líf.

Þessar tvær átakasögur fléttast saman í magnað ferðalag frá karli til konu og í kringum Ísland, með töfrandi og harðgerðum bakgrunni af strandlengju landsins.

Hversu langt þarftu að ferðast til að finna sjálfa þig? Og hvaða fórnir ertu tilbúinn að færa til að finna hamingjuna.

Á MÓTI STRAUMNUM - glæný íslensk heimildamynd - frumsýnd 4. október með enskum texta í Bíó Paradís!

  • ATHUGIÐ! Árskort, klippikort, frímiðar frá Bíó Paradís gilda ekki á þessar sýningar!