Tix.is

Bíó Paradís

Um viðburðinn

Yfirnáttúrulegir hæfileikar menntaskólastúlkunnar Carrie (Sissy Spacek) hjálpa henni að klekkja á skólasystrum sínum er þær niðurlægja hana á skólaballi. Ein af bestu myndunum sem byggðar eru á sögum Stephen Kings. Hrollvekjandi (maður minnist enn tryllingslegra öskranna í Tónabíói sáluga), blóðug, svört og sykurlaus. Spacek og Piper Laurie, í hlutverki móður hennar, eru báðar framúrskarandi og voru tilnefndar til Óskarsverðlaunanna.

Ekki missa af næsta SVARTA SUNNUDEGI, 5. febrúar kl 20:00! Tryggðu þér miða strax!