Skip to content

Tix.is

Bæjarbíó

  • 14. feb. - kl. 20:00

Miðaverð:5.990 kr.

Um viðburðinn

Á Valentínusardaginn verður Guðrún Árný við píanóið og syngur rólegar og rómantískar dægurlagaperlur fyrir gesti.

Hún hefur sungið við ótal tilefni í lífi fólks og nú er tækifærið að rifja upp lögin sem standa ykkur næst.

Í andyrinu fá gestir tækifæri til að skrifa óskalögin sín niður á blöð og setja í lítinn kassa. Guðrún gerir sitt allra besta við að draga upp úr kassanum á sviðinu og koma eins mörgum lögum að og hægt er. Tilvalið að mæta í góðum félagsskap og hlusta og njóta.