Una Torfadóttir er 23 ára söngkona, hljóðfæraleikari, lagahöfundur og alhliða listakona sem hefur einstakt lag á að tengja saman sannleika, hversdagsleika, ást og tónlist og koma því frá sér með þeim hætti að allir sem hlusta skilja og dragast inn í heim Unu og veltast þar um hlæjandi, hlustandi og grátandi.
Una ætlar að byrja árið með því að troða upp í Bæjarbíó. Þar kemur hún fram
ásamt hljómsveitinni sinni, Tumi Torfason á trompet og bassa, Hafsteinn
Þráinsson á gítar og Sólrún Mjöll Kjartansdóttir á trommur.
Byrjaðu nýtt ár á því að hlusta á Unu Torfa, góð byrjun á góðu ári!