Skip to content

Tix.is

Bæjarbíó

Um viðburðinn

DIMMA rís brátt úr dvala og stígur aftur á svið í Bæjarbíói laugardaginn 4. maí. 

DIMMU þarf vart að kynna enda verið ein vinsælasta rokksveit landsins undanfarinn áratug og gefið út sex breiðskífur, jafnmargar tónleikaplötur og átt fjölda laga sem hafa fest sig í sessi í hjörtum landsmanna. 

Birgir Jónsson trommuleikari hefur nú gengið aftur til liðs við DIMMU eftir 6 ára hlé og er sveitin því aftur skipuð sömu fjórmenningum og gerðu saman nokkrar vinsælustu rokkplötur síðasta áratugar á íslandi. 

DIMMA hefur löngum þótt ein öflugasta rokksveit landsins og hefur oftar en ekki verið uppselt á tónleika þeirra.

Tónleikarnir í Bæjarbíói eru viðburður sem þú vilt ekki missa af!  

DIMMA:

Stefán Jakobsson : Söngur

Ingó Geirdal : Gítar

Silli Geirdal : Bassi

Birgir Jónsson : Trommur