Tix.is

Bæjarbíó

Um viðburðinn

Sóli Hólm- LOKSINS Eftirhermur


NÝJAR SÝNINGAR KOMNAR Í SÖLU!


AÐEINS 200 MIÐAR Í SÖLU PR SÝNINGU OG ENGIN HRAÐPRÓF


Uppselt er á fyrstu sýningar Sóla Hólm- LOKSINS Eftirhermur og nýjar sýningar komnar í sölu

Eftirherman og skemmtikrafturinn Sóli Hólm hefur undanfarin misseri, líkt og aðrir sviðslistamenn, þurft að beisla sína þrá og löngun til að standa á sviði og gera tilveru fólks örlítið jákvæðari.

Nú segir hann hingað og ekki lengra og stígur á stokk með nýja uppistandssýningu í Bæjarbíói sem ber heitið LOKSINS Eftirhermur en fyrir Covid 19 faraldurinn sáu yfir tíu þúsund gestir sýninguna Varist eftirhermur. Þegar faraldurinn brast á var Sóli enn að sýna þá sýningu fyrir fullu húsi.


Sýningarnar fara fram í Bæjarbíói Hafnarfirði og mælst er til þess að fólk tryggi sér miða hið fyrsta.