Tix.is

Um viðburðinn

Tónlistarmaðurinn Haraldur V. Sveinbjörnsson fagnar útgáfu sinnar fyrstu plötu undir nafninu Red Barnett með útgáfutónleikum í Fríkirkjunni þann 17.apríl kl.21.00. Á tónleikunum mun Haraldur leika lög af plötunni ásamt fjölda frábærra tónlistarmanna

Haraldur, sem öllu jafna er kallaður Halli, er þúsundþjalasmiður í tónlist og hin síðari ár hefur hann verið í hringiðu margra af athyglisverðustu tónlistarviðburðum landsins, þótt hans hlutverk hafi á stundum verið talsvert falið. Hann útsetti tónlis Skálmaldar fyrir Sinfóníuhljómsveit Íslands, en þeir tónleikar hlutu í síðasta mánuð Íslensku tónlistarverðlaunin sem viðburður ársins. Hann hefur auk þess útsett tónlist Gunnars Þórðarssonar, Pink Floyd og Páls Óskars fyrir Sinfó, svo fátt eitt sé nefnt.

Halli er lærður í klassískum tónsmíðum en er ekki einhamur í tónlist. Snemma vakti hann áhuga margra sem gítarleikari og helsti lagasmiður gruggsveitarinnar goðsagnakenndu Dead Sea Apple, sem freistaði gæfunnar í hinum stóra heimi. Hann er annar söngvara Manna ársins og tók nú nýverið við stöðu bassaleikara í hljómsveitinni Buff. Hann hefur síðustu misserin komið reglulega fram með Dúndurfréttum og Skálmöld sem hljómborðsleikari. Þá hefur Halli unnið með og útsett fyrir fjölda tónlistarmenn bæði íslenska og erlenda.

Miðasala mun fara fram á tix.is og við inngang. Miðaverð er 2.500 kr.

Hljómsveitina skipa:
Finnur Beck - bassi
Hannes Friðbjarnarson - trommur
Ásgeir Ásgeirsson - gítarar
Kjartan Guðnason - ásláttur
Daði Birgisson - hljómborð
Kristín Lárusdóttir fer fyrir strengjakvartett

Nánari upplýsingar um Red Barnett má finna á Facebook