Tix.is

Um viðburðinn
The King of Comedy er kolsvört gamanmynd í leikstjórn Martin Scorsese frá árinu 1983. Með aðalhlutverk fara þeir Robert De Niro og Jerry Lewis en myndin fjallar um frægðardýrkun og bandaríska fjölmiðlamenningu og er löngu orðin költ klassík. The King of Comedy verður sýnd í Bíó Paradís á vegum Svartra Sunnudaga sunnudaginn 8. febrúar klukkan 20:00 í sal 1.