© 2026 Tix Miðasala
Hvammstangi
•
26. - 28. júní
Miðaverð frá
3.000 kr.




Klikk
Alþjóðlega brúðulistahátíðin á Hvammstanga - HIP Fest (Hvammstangi International Puppetry Festival) kynnir sýninguna Klikk en Trukitrek (Spáni/Ítalíu) eru flytjendur verksins.
Samfélagið hefur verið hneppt í þrældóm af algóriþmum: tegund vitsmuna án meðvitundar, gjörólíkt mannlegum vitsmunum eins og við höfum þekkt þá fram að þessu. Lifa tilfinningar eins og ótti, gleði, reiði eða ást enn í þessum nýja veruleika? Klikk er retró-framúrstefnuleg dystópía þar sem hinn illi Mefistó reynir að stela sál Fásts. Sagan gerist í ekki of fjarlægri framtíð, þar sem menn búa í samfélagi sem er vaktað og stjórnað af einu fyrirtæki og þar sem mannslíkaminn er „bættur“ með ígræðslum vélrænna líffæra. Andspænis þessum veruleika vakna nokkrar alvarlegar spurningar: Getum við einn daginn vistað sálir okkar á hörðum diski? Erum við að fjarlægast eðlið um of? Klikk er transhúmanísk dæmisaga sem talar á myndrænan hátt um hvernig algóriþmar hvetja til ákveðinnar hegðunar, þarfa og hugsunarháttar.
Aldurshæfi: 6+
Kíktu á HIP Fest 2026 og upplifðu brúðulist í heimsklassa, ógleymanlegar samverustundir, og fjölskylduvæna skemmtun á Norðurlandi vestra. Við erum rétt rúma tvo tíma frá Reykjavík og á hátíðinni koma saman listamenn hvaðanæva frá heiminum, frábær staðarandi í þorpinu og fjöldi gistimöguleika, m.a. á einu fallegasta tjaldsvæði landsins.

