© 2026 Tix Miðasala
Stúdíó Handbendi
•
26. - 27. júní
Miðaverð frá
2.500 kr.




Skógar
Alþjóðlega brúðulistahátíðin á Hvammstanga - HIP Fest (Hvammstangi International Puppetry Festival) kynnir sýninguna Skógar en Puzzle theatre (Kanada) eru flytjendur verksins.
Grænt lauf sem vex á dauðri grein, viðarbútar sem mynda skrítnar verur, sumar óvinveittar, sumar gamansamar... Forvitnilegur heimur sem kemur á óvart, vekur undrun og innblástur. Heimur sem fær mann líka til að hugleiða og ígrunda.
Í samræmi við listræna nálgun sína er Puzzle Théâtre enn og aftur að fá innblástur frá nýjum miðli til að búa til óhefðbundna, litríka brúðusýningu, fulla af húmor og óvæntum kringumstæðum.
Allur aldur.
Kíktu á HIP Fest 2026 og upplifðu brúðulist í heimsklassa, ógleymanlegar samverustundir, og fjölskylduvæna skemmtun á Norðurlandi vestra. Við erum rétt rúma tvo tíma frá Reykjavík og á hátíðinni koma saman listamenn hvaðanæva frá heiminum, frábær staðarandi í þorpinu og fjöldi gistimöguleika, m.a. á einu fallegasta tjaldsvæði landsins.

