© 2026 Tix Miðasala
Félagsheimilið Hvammstanga
•
26. júní
Miðaverð frá
4.500 kr.




Rót
"Alþjóðlega brúðulistahátíðin á Hvammstanga - HIP Fest (Hvammstangi International Puppetry Festival) kynnir sýninguna Rót en Handbendi (Ísland) eru flytjendur verksins.
Rót er ný, litrík og skemmtileg brúðusýning fyrir áhorfendur á öllum aldri, með fjörugri lifandi tónlist, þar sem lögð er áhersla á miðlun sögunnar í gegnum sjónræna þætti. Hér er varpað fram spurningum varðandi mótun sjálfsmyndar okkar, áhrif uppruna á líf okkar og þörfina fyrir að tilheyra. Sýningin fjallar um ungan dreng sem tilheyrir ólíkum menningarheimum, en hann á íslenskan föður og suður-ameríska móður. Sumar eitt kemur amma drengsins, abuela, í heimsókn til Íslands, og flytur með sér framandi andblæ, söngva, sögur og hefðir frá heimalandi sínu, og drengurinn kynnist sjálfum sér á nýjan hátt.
Sýningin er sköpunarverk listafólks frá ýmsum heimshornum, Paragvæ, Slóvakíu, Bandaríkjunum, Tékklandi, Dóminíska lýðveldinu, Japan, Bretlandi og Íslandi. Þessi fjöruga, hlýlega og nýstárlega sýning á erindi við áhorfendur á ólíkum aldri og af ólíkum uppruna.
Aldurshæfi: 6+
Kíktu á HIP Fest 2026 og upplifðu brúðulist í heimsklassa, ógleymanlegar samverustundir, og fjölskylduvæna skemmtun á Norðurlandi vestra. Við erum rétt rúma tvo tíma frá Reykjavík og á hátíðinni koma saman listamenn hvaðanæva frá heiminum, frábær staðarandi í þorpinu og fjöldi gistimöguleika, m.a. á einu fallegasta tjaldsvæði landsins."

