Ferða lag eftir Svein Einarsson - leiklestur til styrktar Vonarbrúar

Hannesarholt

5. október

Leiklestrarfélagið flytur sviðsettan leiklestur á verkinu Ferða lag eftir Svein Einarsson.

Ferða lag eftir Svein Einarsson fjallar um ljóðræna flugferð hans og hennar, þar sem persónan Hann vonast til að Hún yrki með honum, í þetta skiptið. Flugvélin er háfleygari en gengur og gerist og skáldskapur sprettur fram víðsvegar um vélina, þrátt fyrir stanslaus morð á afþreyingarskjám farþeganna. Það er óvíst hvert ferðinni er heitið og hvort flugvélin hafi yfirhöfuð vængi, svo það er fátt annað að gera en að spenna beltin og vona hið besta.

Allur ágóði af leiklestrinum er til styrktar Vonarbrúar sem styður beint við mannúðarstarf á Gaza.

Leikendur eru Jóhann Sigurðarson, Þórunn Magnea Magnúsdóttir, Sigurður Þór Óskarsson, Ragnheiður Steindórsdóttir, Bergdís Júlía Jóhannsdóttir og Ársæll Níelsson.

Eiríkur Stephensen flytur tónlist.

Næstu sýningar

Gjafakort fyrir öll tilefni

Gefðu viðburð að eigin vali

Kaupa gjafakort

Nýir viðburðir og tilboð fyrir þig í hverri viku

Skráðu þig á póstlistann

Skrá mig
Messenger