Skip to content

Tix.is

Tjarnarbíó

Event info

Lag eftir lag er tilraun til að skoða hvað gerist þegar tíu dansarar mæta tíu ólíkum lögum – hvað þessi tilteknu lög skilja eftir eða kalla fram í líkömum þessara tilteknu dansara og um leið hvað dansararnir kalla fram í lögunum. Í gegnum óteljandi spuna framkölluðust lögin smám saman í dönsurunum og þessi samsetning varð til, lag eftir lag.

Verkið er eftir Margréti Bjarnadóttur og unnið með dansflokknum Forward. Frumsýnt verður 21. maí í Tjarnarbíó.

Margrét Bjarnadóttir útskrifaðist af danshöfundadeild ArtEZ Hogeschool voor de Kunsten í Arnhem, Hollandi, árið 2006 og stundaði meistaranám í ritlist við HÍ árið 2012 – 2015. Hún vinnur í ýmis form og ólíka miðla, einna helst á sviði dans, myndlistar og skrifa. Meðal nýlegra sviðsverka Margrétar er gítarballettinn No Tomorrow sem hún vann í samstarfi við Ragnar Kjartansson, tónskáldið Bryce Dessner og Íslenska dansflokkinn. Verkið hlaut Grímuna „Sýning ársins“ árið 2017 auk þess sem þau Ragnar hlutu verðlaunin „Danshöfundar ársins“. Þá samdi Margrét sviðshreyfingar fyrir Utopiu og nú síðast Cornucopiu, tónleikasýningu Bjarkar sem frumsýnd var í The Shed, í New York, vorið 2019.

Nánari upplýsingar um verk Margrétar: www.maggabjarnadottir.com

Forward with dance er danshópur fyrir dansara á aldrinum 18-25 ára, sem hafa góðan grunn í dansi, hafa lokið framhaldsbraut í listdansi og/eða hafa áhuga á að þróa sig sem danslistamenn. Með Forward, geta ungir dansarar haldið áfram að þróa tæknina en auk þess að þróa kunnáttu sína á skapandi vinnu og aðferðir með því að semja og dansa með ólíkum danshöfundum. Danshópurinn er rekið af Dansgarðinum. Um 12 þátttakendur taka þátt á hverri önn í fjölbreyttum verkefnum og skapa dansverk fyrir listahátíðir bæði innanlands og utanlands.
www.dansgardurin.com

Um aðstandendur:
Danshöfundur: Margrét Bjarnadóttir

Dansarar:Alma Kristín Ólafsdóttir, Andrea Urður Hafsteinsdóttir, Anna Margrét Stefánsdóttir, Emilie Anne Jóhannsdóttir, Guðrún Mist Hafsteinsdóttir, Karen Eik Þórsdóttir, María Kristín Jóhannsdóttir, Marta Ákadóttir, Olga Maggý Erlendsdóttir, Rebekka Guðmundsdóttir.

Ljósmynd: Carlo Cupaiolo

Verkefnið er styrkt af Dansverkstæðinu