Lokatónleikar Alþjóðlegu tónlistarakademíunnar HIMA sem haldin hefur verið árlega síðan 2012. Um eitt hundrað strengjanemendur koma saman á HIMA í þremur deildum sem halda uppskerutónleika í Hörpu í lok námskeiðs.
HIMA nýtur stuðnings frá Hafnarfjarðarbæ, Ýli og Barnamenningarsjóði.
Uppskerutónleikar Yngri deildar HIMA eru í tveimur hlutum – kl. 11 og kl. 12.15.
Einn miði gildir á báða tónleika og hægt er að kaupa miða á meðan viðburðinum stendur.