Skip to content

Tix.is

Salurinn

Event info

 Viðtalstónleikar Gunnars Guðbjörnssonar

Dísella Lárusdóttir er gestur Gunnars Guðbjörnssonar.

Gunnar Guðbjörnsson fær nokkra af þekktustu óperusöngvurum Íslands til sín í spjall í Salnum og fer með þeim yfir söngferil þeirra, lífið og listina. Að þessu sinni er Dísella Lárusdóttir gestur Gunnars.

Dísella Lárusdóttir þreytti frumraun sína hjá Metropolitan óperunni í New York í mars 2013 þar sem hún söng hlutverk Garsendu í óperunni Francesca da Rimini eftir ítalska tónskáldið Riccardo Zandonai. Síðan þá hefur hún fengið að spreyta sig í tíu öðrum óperuuppfærslum á þessu merka sviði; sem Woglinde í óperum Richards Wagner, Rheingold og Götterdämmerung, þjón í Frau Ohne Schatten eftir Richard Strauss, fyrsta skógarálf í Rusalka eftir Antonin Dvorák og Lísu í La Sonnambula eftir Vincenzo Bellini, Barenu í óperunni Jenufa eftir Leoš Janácek, Papagenu í Töfraflautunni eftir W.A. Mozart, Blümenmädchen í Parsifal e. Wagner, Gianettu í L’elisir d’Amore e. Donizetti og síðast en ekki síst Shadow Marnie í Marnie e. Nico Muhly.

Þess má geta að Francesca da Rimini, Rusalka og Marnie voru sýndar í beinni útsendingu um allan heim í svokallaðri HD Live sýningu.  

Dísella hefur m.a. komið fram sem einsöngvari í Carnegie Hall í New York og í Disney Hall í Los Angeles. Þá hefur hún einnig komið fram víða á tónlistarhátíðum í USA. .

Dísella þreytti einnig nýverið frumraun sína á sviði í Evrópu (utan Íslands) þegar hún fór með hlutverk Lulu í samnefndri óperu eftir Alban Berg í óperunni í Róm á Ítalíu.

Á þessu ári eru ýmis spennandi verkefni framundan, m.a. frumflutningur á óperunni Persephone e. Silviu Colasanti á Festival dei due Mondi í Spoleto á Ítalíu og einnig óperan Akhnaten á sviði Metropolitan Óperunnar.

Dísella söng á Tíbrártónleikum árið 2018 og kom síðast fram í Salnum á jólatónleikum með systrum sínum í desember.


Tónleikaröðin er styrkt af Lista- og menningarráði Kópavogs og unnin í samstarfi við Íslensku Óperuna.