Skip to content

Tix.is

Salurinn

Event info

Sameining, sólarlag, þróun 

Tvær kynslóðir framúrskarandi tónlistarmanna taka höndum saman á þessum tónleikum. Þau Guðbjartur Hákonarson, fiðluleikari, Hrafnhildur Marta Guðmundsdóttir, sellóleikari og Helga Bryndís Magnúsdóttir píanóleikari eiga að baki náið samstarf í lífi og leik; Hrafnhildur Marta og Helga Bryndís eru mæðgur og Guðbjartur og Hrafnhildur Marta eru hjón. Hér stíga þremenningarnir í fyrsta sinn fram sem píanótríó og bjóða upp á tvö af sínum eftirlætis kammerverkum.

Meistaraverk Schuberts, Es-Dúr tríóið op.100, er eitt af síðustu verkum tónskáldsins, stórbrotið verk sem tekur um 50 mínútur í flutningi, fullt af unaðslegum laglínum, ljóðrænu og dramatík. Es-Dúr tríóið er verk fullþroskaðs tónskálds á hápunkti ferils síns en sem mótvægi hljómar svo fyrsta verk eftir annan meistara tónbókmenntanna, Dmitri Shostakovich, sem samdi Píanótríó sitt nr. 1 op. 8 eftir að hafa verið við nám í konservatoríinu í Leníngrad í þrjú ár.