Ljóðræna, andhverfa, speglun
Dúplum dúó, skipað Björk Níelsdóttur og Þóru Margréti Sveinsdóttur, hefur komið fram víða á undanförnum árum við frábærar undirtektir en dúóið var stofnað árið 2017.
Á þessum tónleikum
býður dúettinn upp á glænýja tónlist úr ólíkum áttum,en öll eru verkin samin
fyrir hljóðheim Dúplum Dúó, rödd og víólu.
Hér heyrum við Parasite eftir Sóley Stefánsdóttur með texta eftir tónskáldið
sjálft.
Eftir Elínu Gunnlaugsdóttur hljómar ný tónlist við Valsa úr síðustu
siglingu, ljóðabók Lindu Vilhjálmsdóttur.
Textarnir í nýju tónverki Kolbeins Bjarnasonar eru sóttir í „Stílæfingar“
franska rithöfundarins, Raymond Queneau
Dúplum dúó var stofnað árið 2017 og leggur áherslur á nútímaljóðlist og nútímaflutning á ljóðasöng þar sem leitast er við að draga fram það hráa og viðkvæma í tónlistinni með túlkun sinni og hljóðfæraskipan.
Verk Kolbeins og Elínar eru samin með styrk frá Tónskáldasjóði RÚV og STEFs.