Tix.is

Salurinn

Event info

Hildur er söngkona, lagahöfundur og sellisti. Lög hennar eru grípandi og einkennast yfirleitt af dynjandi takti. Tónlist Hildar hefur slegið í gegn undanfarin ár en hún hefur í tvígang átt sterk framlög í Söngvakeppni sjónvarpsins. Hildur hefur samið fyrir ýmsa listamenn um allan heim og haldið lagasmíðanámskeið fyrir konur á Íslandi.

Söngvaskáld er ný röð innilegra tónleika þar sem söngvaskáld spila lög sín og segja frá tilurð laganna. Á Íslandi er að finna gífurlegt magn hæfileikaríkra tónlistarmanna sem semja og spila sín eigin lög, í öllum mögulegum tónlistarstefnum. Þessi nýja tónleikaröð mun beina athygli að þessum listamönnum, varpa ljósi á margvíslegar aðferðir listamanna við lagasmíðar og gefa þjóðþekktum lögum meiri dýpt sem fylgir því að heyra sögur af tilurð þeirra.