Skip to content

Tix.is

Óperan

  • Tue 1 Jul 2025 at 12:00 PM

Ticket price:20.000 kr.

Event info

Kammermúsíkklúbburinn var stofnaður árið 1957 og kynnir nú 69. starfsár sitt – starfsárið 2025-2026 – um leið og opnað er fyrir almenna sölu árskorta. Árskort sem gildir á alla tónleika starfsársins kostar 20.000 kr. en fullt verð á stökum aðgöngumiðum er 4.900 kr. Hægt er að kaupa árskortin hjá miðasölu Hörpu og á harpa.is en þau verða tilbúin til afhendingar í miðasölu Hörpu frá og með 23. ágúst en þá heldur Kammermúsíkklúbburinn stutta tónleika sem eru hluti af Menningarnæturdagskrá Hörpu. Þá hefst einnig almenn miðasala á tónleika Kammermúsíkklúbbsins.

Tónleikar starfsársins eru sex talsins að meðtöldum fjölskyldutónleikum sem eru nýjung í starfi klúbbsins og fara þeir fram í samstarfi við fjölskyldudagskrá Hörpu. Aðgangur inn á fjölskyldutónleikana er ókeypis. Nokkrir flytjendur eru fastagestum Kammermúsíkklúbbsins að góðu kunnir en margir flytjendanna starfa erlendis og hér gefst þess vegna sjaldfengið tækifæri til að njóta tónlistarflutnings þeirra hér á landi. Alls koma tuttugu hljóðfæraleikarar fram á tónleikum Kammermúsíkklúbbsins þetta starfsárið, þar af tíu í fyrsta sinn. Efnisskráin samanstendur af ástsælum og krefjandi kammerverkum eftir nokkur helstu tónskáld tónlistarsögunnar ásamt frumflutningum á verkum eftir Grigory Frid, Eleanor Alberga og Veronique Vöku. Hér fer á eftir yfirlit yfir tónleika starfsársins. Allir tónleikarnir nema fjölskyldutónleikarnir fara fram í Norðurljósum í Hörpu í samstarfi við Hörpu og Sígilda sunnudaga.

Nánari upplýsingar og efnisskrár tónleika eru á kammer.is.

Velkomin á tónleika Kammermúsíkklúbbsins!

--------
28/09/2025 KL. 16
KMK69, NR. 1
Afmælisfögnuður: Pärt og Ravel

Flytjendur:
Ari Þór Vilhjálmsson, fiðla
Sigurgeir Agnarsson, selló
Liam Kaplan, píanó

Á upphafstónleikum vetrarins fá tvö af þekktustu verkum franska tónskáldsins Maurice Ravel, Píanótríóið og Fiðlusónatan, að njóta sín við hlið hins sívinsæla Spiegel im Spiegel og hins sjaldheyrða píanótríós Mozart-Adagio eftir Arvo Pärt. Ravel fæddist fyrir sléttum 150 árum og Pärt fagnar níræðisafmæli þann 11. september 2025.

Fiðluleikarinn Ari Þór Vilhjálmsson, listrænn stjórnandi Kammermúsíkklúbbsins leikur ásamt tveimur leiðandi hljóðfæraleikurum Sinfóníuhljómsveitar Íslands, þeim Sigurgeiri Agnarssyni sellóleikara og Liam Kaplan píanóleikara.

----------
9/11/2025 KL. 16
KMK69, NR. 2
Á vit ævintýranna: Frid, Schumann og Mozart

Flytjendur:
Ásdís Valdimarsdóttir, víóla
Grímur Helgason, klarinett
Elisaveta Blumina, píanó

Á þessum tónleikum hljómar fyrsta verkið sem samið var fyrir klarinett, víólu og píanó, Kegelstatt-tríóið eftir Mozart, ásamt Ævintýrum Schumanns fyrir sömu hljóðfærasamsetningu. Einnig verður víólusónata eftir Grigory Frid frumflutt á Íslandi, en hún var samin árið 1971. Ásdís Valdimarsdóttir og Elisaveta Blumina leika reglulega saman kammertónlist í tónlistarhúsum Evrópu en Elisaveta kemur nú fram í fyrsta sinn á Íslandi. Grímur Helgason, staðgengill leiðara klarinettudeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands, leikur einnig í fyrsta sinn fyrir Kammermúsíkklúbbinn.

----------
18/01/2026 KL. 16
KMK69, NR. 3
Kvartettferðalag: Austurríki til Jamaíka

Flytjendur:
Rannveig Marta Sarc, fiðla
Herdís Mjöll Guðmundsdóttir, fiðla
Brian Hong, víóla
Geirþrúður Anna Guðmundsdóttir, selló

Unnendur strengjakvartetta mega ekki að missa af þessum tónleikum þar sem tveir kvartettar í f-moll, op. 20. nr. 5 eftir Haydn og op. 80 nr. 6 eftir Mendelssohn verða í aðalhlutverki. Auk þeirra verður Strengjakvartett nr. 2 eftir jamaíska tónskáldið Eleanor Alberga frumfluttur á Íslandi, en hún samdi verkið árið 1994. Flytjendur eru meðal þeirra fremstu af yngri kynslóð íslenskra hljóðfæraleikara . Þau eru öll starfandi erlendis en þau koma sérstaklega til landsins til að flytja þessa spennandi efnisskrá.

----------
15/03/2026 KL. 16
KMK69, NR. 4
Upphaf og endir: Shostakovich

Flytjendur:
Judith Ingólfsson, fiðla og víóla
Vladimir Stoupel, píanó
Bryndís Halla Gylfadóttir, selló

Tónleikarnir eru helgaðir Dmitri Shostakovich, einu merkasta og dáðasta tónskáldi 20. aldarinnar, í tilefni þess að í ágúst 2025 verða liðin 50 ár frá því að hann lést í Moskvu. Á tónleikunum heyrum við æskuverkið Píanótríó nr. 1 sem hann samdi aðeins 16 ára gamall, en Sónötu fyrir fiðlu og píanó samdi hann ekki fyrr en um hálfri öld síðar. Tónleikarnir enda á síðasta verkinu sem Shostakovich lauk við að semja, aðeins örfáum vikum áður en hann lést, en það var hin magnþrungna Sónata fyrir víólu og píanó.

Judith Ingólfsson, sem fæddist í Reykjavík og skaust upp á stjörnuhimininn þegar hún vann Indianapolis fiðlukeppnina 1998, leikur hér á bæði fiðlu og víólu ásamt eiginmanni sínum og dúófélaga Vladimir Stoupel. Með þeim leikur sellóleikarinn Bryndís Halla Gylfadóttir.

----------
12. APRÍL 2026 KL. 14
KMK69, NR. 5
Fjölskyldudagskrá Hörpu og Kammermúsíkklúbbsins – í Kaldalóni

Dagskrá tilkynnt síðar.

Ókeypis aðgangur!

----------
3/5/2026 KL. 16
KMK69, NR. 6
Lokatónar: Mozart, Brahms, Britten og Vaka

Flytjendur:
Strokkvartettinn Siggi:
Una Sveinbjarnardóttir, fiðla
Helga Þóra Björgvinsdóttir, fiðla
Þórunn Ósk Marinósdóttir, víóla
Sigurður Bjarki Gunnarsson, selló
Emilía Rós Sigfúsdóttir, flauta
Julia Hantschel, óbó
Mathias Susaas Halvorsen, píanó

Á síðustu tónleikum vetrarins flytur Strokkvartettinn Siggi glæsilega og fjölbreytta efnisskrá ásamt þremur gestum á ólík hljóðfæri. Fyrir hlé verða flutt tvö verk fyrir blásturshljóðfæri og

strengi, Flautukvartett í D-dúr eftir Mozart með Emilíu Rós Sigfúsdóttur og Phantasy Quartet eftir Benjamin Britten með Juliu Hantschel, leiðara óbódeildar Sinfóníuhljómsveitar Íslands. Einnig verður frumflutt nýtt verk eftir Veronique Vöku. Eftir hlé flytur Strokkvartettinn Siggi ásamt Mathias Susaas Halvorsen píanóleikara hið magnaða stórvirki Brahms, Píanókvintett í f-moll.