Skip to content

Tix.is

Menningarfélag Akureyrar

  • Apr 19th 16:00
  • Apr 19th 19:00

Ticket price:10.999 - 15.999 kr.

Event info

Söngvarinn ástsæli Vilhjálmur Vilhjálmsson fæddist 11. apríl árið 1945 og hefði því orðið áttræður í apríl nk. Fólk man ljúfa tenórrödd þessa vinsæla dægurlagasöngvara og það sem meira er, ungt fólk sem fætt er löngu eftir fráfall Vilhjálms dáir lögin sem hann gerði að sínum með persónulegum og áreynslulausum söngstíl. Mörg lög lifa enn í minningunni hátt í fimmtíu árum eftir að þau komu út, svo sem Lítill drengur, Bíddu pabbi, Þú átt mig ein og Söknuður svo að örfá séu nefnd.

Í tilefni af fæðingarafmæli söngvarans verða einstakir afmælistónleikar haldnir í Hofi laugardaginn 19. apríl. Friðrik Ómar syngur lög Vilhjálms ásamt stórhljómsveit undir stjórn Karls. O. Olgeirssonar. Björt og fögur söngrödd Friðriks minnir óneitanlega á áferð raddar Vilhjálms.

Sérstök forsala verður á miðlum Friðriks Ómars þann 10. desember kl. 10:00.

Instagram: fromarinn

Facebook: fridrikomar

Almenn miðasala hefst 12. desember kl. 10:00 á mak.is

Um Vilhjálm Vilhjálmsson

Vilhjálmur hóf söngferil sinn með hljómsveitinni Busabandinu árið 1961 þegar hann var við nám við Menntaskólann á Akureyri. Fram að þeim tíma hafði hann ekki mikla trú á tónlistarhæfileikum sínum og stefndi ekki á frama á því sviði. Vilhjálmur kom þó úr mikilli tónlistarfjölskyldu. Hann var yngstur fimm systkina og ólst upp á Merkinesi í Höfnum á Suðurnesjum. Faðir hans, Vilhjálmur Hinrik Ívarsson, var þekktur harmonikuleikari og söngmaður en eldri systir hans var, eins og alþjóð veit, söngkonan Elly Vilhjálms.

Vilhjálmur fylgdi fyrrverandi meðlimi úr Busabandinu, Þorvaldi Halldórssyni, og fór að syngja með Hljómsveit Ingimars Eydal árið 1965, um svipað leyti og hann lauk menntaskólanámi. Hann söng inn á tvær plötur með hljómsveitinni og vann strax hylli þjóðarinnar með lögum eins og Litla sæta ljúfan góða og Vor í Vaglaskógi.

Vilhjálmur hætti í hljómsveit Ingimars Eydal og fluttist til Reykjavíkur til að hefja tannlæknanám. Hann sagði þó ekki skilið við tónlistina og vann fyrir sér með því að syngja með Hljómsveit Magnúsar Ingimarssonar sem lék á veitingahúsinu Röðli öll kvöld vikunnar. Vilhjálmur hætti tannlæknanáminu eftir tvö ár og helgaði sig alfarið tónlistinni.

Vilhjálmur söng inn á fjórar plötur með systur sinni Elly, sú fyrsta, Systkinin Vilhjálmur og Elly syngja saman, kom út árið 1969. Allar plöturnar nutu mikilla vinsælda og varla er til sá Íslendingur sem ekki getur raulað með jólaplötu þeirra systkina.

Eftir að hafa lokið flugnámi árið 1970 flutti Vilhjálmur til Lúxemborgar en kom þó reglulega heim í frí og söng inn á plötur. Hann gaf út sólóplötu árið 1972 sem sló rækilega í gegn. Platan innihélt vinsæl lög eins og Bíddu pabbi og Ó mín kæra vina. Árið 1976 kom svo út platan Með sínu nefi þar sem Vilhjálmur söng lög sem hann lét semja við ljóð Kristjáns frá Djúpalæk. Ári síðar kom svo út platan Hana-nú sem geymdi meðal annarra lögin Sökunuður og Þú att mig ein. Söngferill Vilhjálms spannaði þó ekki langan tíma, en hann lést sem kunnugt er langt fyrir aldur fram í bílslysi í Lúxemborg árið 1978. Vilhjálmur lét eftir sig þrjú börn.