Gunnar Þórðarsson er einn ástsælasti tónlistarmaður
þjóðarinnar fyrr og síðar. Hann hefur samið yfir 800 lög og hefur auk þess
samið tónlist fyrir kvikmyndir og söngleiki.
Einnig hefur hann útsett og stjórnað upptökum á fjölda hljómdiska. Á síðustu
árum hefur Gunnar í vaxandi mæli fengist við klassíska tónlist og hefur
Sinfóníuhljómsveit Íslands flutt nokkur verka hans.
Á þessum tónleikum ætlum við að leyfa ykkur að heyra nokkrar fallegar
dægurlagaperlur Gunnars, lög á borð við: Fyrsti kossinn, Bláu augun þín, Gull,
Vetrarsól og mörg, mörg fleiri.
Hljómsveitarstjórn: Magnús Þór Sveinsson
Útsetningar: Stefán Örn Gunnlaugsson
Stjórnandi bakradda: Hrafnhildur Ýr
Sögumaður og kynnir: Valgerður Erlingsdóttir
Viðburðarstjórnun: Hulda Jónasdóttir
Söngvarar
Arna Rún Ómarsdóttir
Dagur Sigurðsson
Daníel E. Arnarsson
Gísli Magna
Hrafnhildur Ýr Víglundsdóttir
Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm
Ingibjörg Fríða Helgadóttir
Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir
Hljómsveit
Magnús Þór Sveinsson - Píanó / hljómborð
Yngvi Rafn Garðarsson - Gítar
Eiríkur Hilmisson - kassagítar
Páll Sólmundur Eydal - Bassi
Ragnar Már Jónsson - Saxófónn
Sigurður Ingi Einarsson - Trommur