Tix.is

Menningarfélag Akureyrar

  • From December 7th
  • To December 15th
  • 6 dates
Ticket price:3.900 kr.
Event info

Lóla er jóla-krakki sem býr í fjöllunum með jólasveinunum. Hana langar mest af öllu að komast í landslið jólavætta og klæðast rauðu landsliðstreyjunni. Gæti jafnvel hugsað sér að verða ofurhetju-jóla-Lóla. Fæstum þykir hugmyndin góð, en stelpan er staðráðin í að halda til byggða, gefa í skóinn og fara á jólaball.

Og tækifærið kemur þegar hún rakar óvart skeggið af Skyrgámi, sem er of spéhræddur til að fara allsber í framan til byggða.

Fyndin og hugljúf sýning á aðventunni fyrir fólk á öllum aldri sem langar að finna fyrir jólabarninu í sjálfu sér.

Og ef þið eruð að frétta það fyrst núna að Jólalóla sé til í raun og veru, þá ættuð þið bara að vita hvað það eru margar skrítnar skrúfur þarna uppi í fjöllunum. Já, skrúfur – ekki Stúfur.

Sýningin verður sýnd í Samkomuhúsinu í Desember og heyrst hefur að allir jólasveinarnir berjist um að fá að setja gjafabréf á sýninguna í skóinn hjá börnunum.