Heimurinn er betri en við höldum!
Píla Pína á sér eina ósk heitar öllu. Það er að færa móður sinni gleði. Alveg síðan Gína mamma hennar hraktist burt frá fjölskyldu sinni og heimkynnum vegna kattarins ógurlega, hefur hún verið döpur. Píla Pína leggur þá upp í hættulegt ferðalag til að lækna hjarta móður sinnar. Hún þarf að vera sniðug og hugmyndarík til þess að ná á leiðarenda heil og höldnu. Á leið sinni lærir hún að hafa trú á sjálfri sér. Hún lærir að mýs geti allt…..jafnvel flogið!
Ævintýrið um Pílu Pínu eftir Heiðdísi Norðfjörð, sem byggt er á ljóðum Kristjáns frá Djúpalæk, þekkja margir. Tónlist Heiðdísar og Ragnhildar Gísladóttur, við ljóð Kristjáns um Pílu Pínu, hefur flutt heilar kynslóðir á ævintýraslóðir.
Það er föngulegur hópur leikara, söngvara, hljóðfæraleikara og brúða sem skapar heim Pílu Pínu, litlu hagamúsarinnar sem breytti heiminum. Tónlistin úr Pílu Pínu liggur nærri hjartarótum heillar kynslóðar af Íslendingum og fá áhorfendur loks tækifæri til að heyra hana með lifandi undirleik klassískrar hljómsveitar í Hamraborg.
Hér kynnumst við sameiningarkrafti Menningarfélags Akureyrar en þessi 318. sviðsetning Leikfélags Akureyrar er sett upp í samstarfi við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Menningarhúsið Hof.
Höfundur: Heiðdís Norðfjörð, byggt á ljóðum Kristjáns frá Djúpalæk
Tónlist: Heiðdís Norðfjörð og Ragnhildur Gísladóttir
Leikgerð: Sara Marti Guðmundsdóttir og Sigrún Huld Skúladóttir
Leikstjóri: Sara Marti Guðmundsdóttir
Tónlistarstjóri: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
Búningar og gervi: Margrét Einarsdóttir
Leikmynda- og brúðuhönnun: Rebekka A. Ingimundardóttir
Ljósahönnun: Magnús Arnar Sigurðarsson
Myndbandshönnun: Ingi Bekk
Danshöfundur: Katrín Mist Haraldsdóttir
Teiknarar: Dan Denton og Ana Stefaniak
Grímur: Sigríður Rósa Bjarnadóttir og Sif Guðmundsdóttir
Sýningarstjórn: Þórunn Geirsdóttir
Hljóðhönnun: Gunnar Sigurbjörnsson og Þóroddur Ingvarsson
Leikarar: Thelma Hrönn Sigurdórsdóttir, Þórunn Lárusdóttir, Benedikt Karl Gröndal, Saga Jónsdóttir, Kjartan Darri Kristjánsson, Eik Haraldsdóttir, Eyþór Daði Eyþórsson, Bjarklind Ásta Brynjólfsdóttir, Freysteinn Sverrisson og Jón Páll Eyjólfsson
Hljómsveit:
Daníel Þorsteinsson: Hljómborð
Marcin Jakub Lazarz: Fiðla
Sigrún Mary McCormick: Víóla
Ásdís Arnarsdóttir: Selló
Kristján Edelstein: Gítar
Stefán Ingólfsson: Bassi
Hjörleifur Jónsson: Slagverk
Halldór G. Hauksson: Trommur
Petrea Óskarsdóttir: Flauta
Helgi Þorbjörn Svavarsson: Horn
Hljómsveitarstjóri: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson
Kór: Eldri barnakór Akureyrarkirkju
Kórstjóri: Sigrún Magna Þórsteinsdóttir
Ljósakeyrsla: Lárus Heiðar Sveinsson og Þórir Gunnar Valgeirsson
Hljóðstjórn: Gunnar Sigurbjörnsson
Sviðsmaður: Jón Birkir Lúðvíksson
Sviðsmaður og umsjónarmaður sendihljóðnema: Davíð Heiðmann Aðalsteinsson
Hár og förðun: Heiðdís Ólafsdóttir Austfjörð
Búningavarsla: Kristín Sigvaldadóttir
Klæðskeri: Berglind Magnúsdóttir / Klæðskerahöllin
Aðstoð við búninga: Fiona Cribben, Íris Eggertsdóttir, Rannveig Gísladóttir
Leikmyndasmíði og -málun: Inga Lóa Guðjónsdóttir, Jóhannes Ingibjartsson, Guðný Else Jóhannesdóttir og sérstakar þakkir til Hilmars Páls Jóhannessonar.
Leikmunagerð: Rebekka A. Ingimundardóttir, Eleni Podara, Íris Eggertsdóttir, Rakel Hildardóttir, Kristín Sigvaldadóttir og Nancy Georgs.
Sviðs- og leikmyndavinna: Magnús Viðar Arnarsson, Bjarki Árnason og Þóroddur Ingvarsson.