Karlakór Akureyrar Geysir fagnar 100 ára samfelldu karlakórastarfi á Akureyri. Fyrstu tónleikar Geysis voru haldnir 17. desember 1922 og Karkakór Akureyrar hélt sína fyrstu tónleika í ársbyrjun 1930. Sameinaðir hafa þeir kórar starfað frá 1990.
KAG
býður upp á fjölbreytt efnisval sem um leið spannar lengra tímabil í
karlakórasöng þótt ekki sé alveg einfalt að túlka 100 ára tímabil í
hefðbundinni dagskrá. Sérstaklega vill kórinn höfða til eldri félaga sem eru
boðnir velkomnir - (jafnvel til að taka þátt í söngnum og stíga á svið) - og í
því skyni býðst gömlum félögum kórsins(kóranna) að skrá sig og nýta tilboð 2:1
í leiðinni.