Tix.is

Menningarfélag Akureyrar

Event info

Allra síðustu sýningar komnar í sölu!

Hér er leikskráin. 

Söngleikurinn Chicago eftir John Kander, Fred Ebb og Bob Fosse er einn þekktasti og vinsælasti söngleikur allra tíma og hefur unnið til fjölda verðlauna. Chicago var frumsýndur á Broadway árið 1975 og sló strax í gegn en uppsetningin frá árinu 1996 gengur enn fyrir fullu húsi og er ein sú langlífasta á Broadway frá upphafi. Hafa ófáar kvikmyndastjörnur tekið að sér aðalhlutverkin m.a. Pamela Anderson, Brooke Shields og Melanie Griffith. Samnefnd kvikmynd frá árinu 2002 með Catherina Zeta Jones, Rene Zellweger og Richard Gere í aðalhlutverkum sló einnig í gegn og vann til fjölda óskarsverðlauna m.a sem besta kvikmyndin.

Sagan gerist á þriðja áratug síðustu aldar í hinni spilltu og lostafullu Chicagoborg þar sem svik og prettir eru daglegt brauð. Glæpakvendin Velma Kelly og Roxy Hart berjast um athygli fjölmiðla í von um frægð og frama og þrátt fyrir að vera báðar undir lás þá svífas þær einskis til að slá í gegn. Chicago er meinfyndin og skemmtileg ádeila á spillingu og yfirborðsmennsku fjölmiðla og réttarkerfisins. Hann iðar af fjöri, hispursleysi og húmor ásamt ógleymanlegri tónlist og dansatriðum sem kitla öll skynfæri.

Þetta er í fyrsta sinn sem þessi vinsæli og margverðlaunaði söngleikur er sýndur á Akureyri í atvinnuleikhúsi en Chicago hefur aðeins einu sinni áður verið fluttur á Íslandi en það var árið 2005 í Borgarleikhúsinu.

 

 

Leikstjóri: Marta Nordal

Tónlistarstjóri: Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson

Danshöfundur: Lee Proud

Leikmynd: Eva Signý Berger

Búningar: Björg Marta Gunnarsdóttir

Ljósahönnuður: Ólafur Ágúst Stefánsson

Hljóðmaður: Sigurvald Ívar Helgason

Þýðing: Gísli Rúnar Jónsson