Fögnum vori með söng
Karlakór Akureyrar Geysir fagnar 100 ára afmæli samfellds karlakórastarfs á
árinu. Í tilefni af því og eftir langan Covid-tíma finnst kórnum vel til fundið
að bjóða yngri og eldra áhugafólki um söng og gleði sérstaklega að fagna vorinu
með söng. Aðgangseyri er þannig stillt í hóf kr. 3000. Söngskráin er
fjölbreytt, frá hefðbundnum karlakórlögum og yfir í nánari nútíma og sérstakur
gestur á þessum tónleikum er Andrea Gylfadóttir. Söngstjóri KAG er Valmar
Väljaots en hann tók við kórnum sl. haust, en hann hefur áður stjórnað kórnum
um árabil.