Íslandsmótið í fitness fer
fram í Menningarhúsinu Hofi laugardaginn 6. nóvember. Mótið er haldið á vegum
IFBB – Alþjóðasambands líkamsræktarmanna. Keppnin hefst með forkeppni kl 13:00
þar sem allir flokkar koma fram í fyrstu lotu. Áætlað er að forkeppnin taki um
90 mínútur en spennan verður í hámarki þegar úrslitin sjálf hefjast klukkan
18:00. Miðaverð er 3.500,– á viðburðinn og gildir miðinn á bæði forkeppnina og
úrslitin. Miðaverð fyrir 12 ára og yngri er 1.500,-