Tix.is

Menningarfélag Akureyrar

Event info

Tónlistarfélag Akureyrar í samvinnu við List fyrir alla, Menningarfélag Akureyrar og Sóknaráætlun Norðurlands eystra bíður öllum nemendum í 4. 5. og 6. bekk úr 19 skólum á Norðurlandi að sjá sýninguna Stúlkan í turninum. 


Tónverkið Stúlkan í turninum var samið af Snorra Sigfúsi Birgissyni fyrir Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Það var flutt í grunnskólum um Norðurland haustið 2005.

Verkið er sígílt og teljum við ástæðu til þess að flytja það reglulega.
13 hljóðfæraleikarar taka þátt í verkinu og sína þverskurð hljóðfæraskipunar í klassískri sinfóníuhljómsveit. Þarna gefst tækifæri til þess að kynna börnum þennan hljóðheim og að vera með kynningu á lifandi hátt. 

Tónlist og sögumaður: Snorri Sigfús Birgisson
Saga: Jónas Hallgrímsson
Flytjendur: Félagar úr Sinfóníuhljómsveit Norðurlands
Stjórnandi: Guðmundur Óli Gunnarsson

Verkið byggir á sögu Jónasar Hallgrímssonar um Stúlkuna í turninum og er stefnt að því að vinna skólakynningar í samvinnu við íslenskukennara þannig að börnin þekki til sögunnar fyrirfram og hafi unnið verkefni henni tengd. Einnig má sjá fyrir sér meiri samvinnu eins og t.d. við listgreinakennara, myndlist, textíl, leiklist og dans.
Sagan fjallar um baráttu góðs og ills. Boðskapurinn er sígildur og skýr, hið góða mun sigra að lokum ef við sýnum nægilega trú og tryggð. Tónlistin túlkar söguna samhliða því sem hún er sögð.
Upptaka á tónverkinu var gerð í tónlistarhúsinu Laugarborg í janúar árið 2006. Útgáfan er mjög vönduð og í bæklingi er ævintýri Jónasar prentað í heild sinni með myndskreytingum. Það er listakonan Veronica Nahmias sem bjó til myndir við söguna.