Improv Ísland býður gestum á einstaka kvöldskemmtun; jólatónleika þar sem öll lög eru spunnin á staðnum ásamt fjögurra manna hljómsveit.
Spunaleikarar Improv Ísland flytja splunkuný jólalög út frá hugmyndum áhorfenda. Komdu og heyrðu þekktustu jólalög okkar íslendinga sem þú hefur aldrei heyrt áður og munt aldrei heyra aftur meðan þú veltist um í jólahláturskasti.
Hljómsveitarstjóri er Egill Andrason.
Um Improv Ísland
Improv Ísland hefur sýnt spunasýningar fyrir fullu húsi alla miðvikudaga í Þjóðleikhúskjallaranum síðan 2016. Í leikhópnum eru rúmlega 20 spunaleikarar sem skiptast á að sýna ólík spunaform vikulega, fá til sín fræga gesti, ásamt sérsýninga eins og Improvision og nú; Jólavinir Improv Ísland.
Listrænn stjórnandi er Hákon Örn Helgason.